Hvað fannst ykkur?

Já, hvað fannst ykkur?
Um hvað?
Jú, hvað fannst ykkur um árna M. Mathiessen í Silfri Egils í dag?
Hnvað fannst mér?
Veit ekki, talaði bara slatta og hratt. tók til dæmis nokkum sinnum fram í fyrir Atla karli Gísla og VAlgerði kannski líka, en var ekkert sérstaklega hress.
Svo var Björgvin G. þarna líka með sína fallegu bassarödd, veit að hann er ágætisstrákur, en veit ekkert um hann sem ráðamann.
En Árni, er hann í góðum málum eða slæmum?
Bæði og já og hvorki né kannski!?
Veit ekki alveg samt, en vildi ekki vera hann og þótt hann hafi aðeins hærra kaup en ég, vildi miklu frekar vera Eigill, hann er líka með aðeins hærra kaup, en svo hlær hann líka miklu meir en ég, væri nú alveg til í það og fá borgað fyrir!
Held líka að Egill sé hamingjusamur maður og slíkt verður nú aldrei metið til fjár!
En Árni getur svo sem líka verið það, skal ekki þræta fyrir það, en þessa stundina gæti ég samt trúað að hamingjan hafi tekið sér frí frá honum, allavega um stundar sakir!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veit ekki með Silfrið sá það ekki ekki, en í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að Árni hafi mótmælt pólitískum ráðningum á Alþingi árið 1993. Í umræðum haustið ´93 um skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið ´92, tók Árni undir með umboðsmanni  í gagnrýni á skipan tollvarðar á Keflavíkurflugvelli. Jón Baldvin sem var utanríkisráðherra réð til starfans sem í raun var talinn vanhæfur og Árni sagði málið svo alvarlegt að það yrði ekki við það unað. Nokkrum mánuðum áður höfðu þrír þingmenn Alþíðuflokksins verið skipaðir í veigamikil opinber embætti, jón Sig varð Seðlabankastjóri, Eiður Guðna. sendiherra og Karl Steinar forstjóri Tryggingastofnunar. Árni spyrti þær skipanir og ráðningu tollvarðarins saman og sagði þær "kasta slíkum skugga á embættisfærslur og embættisferil hæstvirts utanríkisráðherra að sér þætti nóg um.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 18:57

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk kærlega bubbi. Já, menn hafast misjafnt að og eru fljótir að skipta um skoðun þegar þeir komast sjálfir fyrir alvöru að kjötkötlunum, fá alvöruvald í eigin hendur!Svo eru menn fljótir að gleyma, jafnvel eigin gjörðum og skoðunum og reyna ekkert að rifja þær upp ótilneyddir!

Magnús Geir Guðmundsson, 30.3.2008 kl. 19:40

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

jæja félagi; svaraðu mér nú...og ekkert slór!

Heiða Þórðar, 30.3.2008 kl. 22:54

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Er ekki búin að hlusta á hann, leiðist hann afskaplega sá maður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2008 kl. 22:57

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Blessuð slepptu því þá bara elskan mín góða!

Magnús Geir Guðmundsson, 1.4.2008 kl. 17:08

6 identicon

Auðvitað á hann Árni M. Mathiesen að segja af sér. Ríkisstjórnin á að segja af sér. Hann gerir hvert glappaskotið á fætur öðru. Maðurinn er algjörlega óhæfur til að gegna þeim embættisstörfum sem hann gegnir. Menn geta ekki hunsað vinnu matsnefndar, eins og hann gerði þegar hann réð Davíðssoninn norður yfir heiðar. En hann situr sem fastast. Spilling er eitt helsta einkenni bananalýðvelda, svo að við hér á Íslandi eigum ýmislegt sameiginlegt með löndum eins og Nígeríu og Zimbabwe. Eða ætli Mugabe hrökklist frá völdum? Það held ég ekki. Þá er það frekar vegna aldurs en annað. 

Stefán (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 20:33

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þú ert bara hress Stefán, en varla meiri líkur á að Árni M. og ríkisstjórnin hér fari frá frekar en Mugabe, eða hvað?

Magnús Geir Guðmundsson, 1.4.2008 kl. 23:27

8 Smámynd: Jens Guð

  Egill er einn allra skemmtilegasti sjónvarpsmaður landsins.  Að vísu er ekkert gaman að drottningarviðtölum hans við tiltekna stjórnmálamenn.  En hann hefur gott lag á að laða fram áhugaverða umræðu þegar margir eru til svara. 

  Árni Matt hefur gert upp á bak klaufalegar en mann rekur minni til.  Með fádæma undirlægjuhætti gagnvart þeim sem öttu honum út í embættisafglöp hefur hann stimplað sig út úr umræðu sem marktækur stjórnmálamaður.  Framtíð hans er ráðin sem fulltrúi lágkúrulegrar spillingar.  Það er gróft að segja það en maðurinn er dómgreindarlaust fífl.  Á maður ekki að segja hlutina umbúðarlaust eins og þeir eru? 

Jens Guð, 3.4.2008 kl. 00:52

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jú, en þetta er nú heldur hvasst gamli minn, hafði nú ekki fyrr tekið eftir þessari athugasend. Hvort sem viðkomandi á það skilið eða ekki að vera sendur tónninn eða hann gagnrýndur harkalega að ríku tilefni, skulum við nú samt sleppa beinum persónulegum fúkyrðum í framtíðinni félagi!

Magnús Geir Guðmundsson, 4.4.2008 kl. 09:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 217999

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband