HA!?

Ekki er fyrr gengin yfir umræða um þessa baráttu í bæ í Svíþjóð, þar sem ég ygg flestir hérlendis voru nú sammála um að berir bringukollar í sundi eða annars staðar væru nú ekkert tiltökumál og umhverfið færi ekki á haus þess vegna, þá berast þessi ósköp til eyrna og það frá sjálfum heilsubænum Hveragerði!?
Ég á eiginlega ekki til eitt einasta orð um þetta!
En spyr, við hvað eru menn eiginlega hræddir?
Ekki skal ég um segja, en hitt er á hreinu að fortíðardraugar eru greinilega enn á stjái!
mbl.is Bannað að bera brjóstin í Hveró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eftir því sem bæjarstjórinn segir, þá fór vörðurinn á taugum af því að þetta kemur svo sjaldan fyrir. Ja hérna, menn sem bregðast svona við berum brjóstum eiga ekki að vinna við baðvörslu.  Og bæjarstjóranum fannst þetta bara fyndið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2008 kl. 14:17

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Alltaf fara karlar berbrjósta í sund, sama hvað þeirra brjóst eru stór... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 18.3.2008 kl. 14:20

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jájá, mínar góðu vinkonur, maður veit eiginlega ekki hvort maður á að hlægja eða gráta?

Bæjarstjórinn hefur þá verið að reyna að bjarga því sem bjargað verður Cesil.

Og hehe Lára Hanna, ég fór nú nokkrum sinnum í sund í Svíþjóð með íslenskri vinkonu, bæði sýndum við okkar fögru brjóst og voru mín nú litlu sem engu minna vænnni!

Auðvitað tengjast konubrjóstin kynlífi, en ég þekki nú engan sem hefur verið að "Fara yfirum" af að sjá þau alveg ber í sundi eða á sólarströnd, en að minnsta kosti standandi hálfber út úr bikinitopp! Myndi bara frekar telja það meir lokkandi í seinna tilfellinu, ef þá um slíkt er yfir höfuð um að ræða!

(níðþröngur og blautur sundbolur um fagran kropp sömuleiðis og ekki síður lokkandi ef út í það er farið og maður vill halda þesssari línu!)

Magnús Geir Guðmundsson, 18.3.2008 kl. 17:07

4 Smámynd: Halla Rut

Það hlýtur að vera erfitt að vera hræddur við náttúruna í sinni björtustu mynd.

Halla Rut , 19.3.2008 kl. 21:39

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Góður punktur Halla Rut!

Magnús Geir Guðmundsson, 20.3.2008 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 217999

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband