Tala við Viggó...STRAX!

Þegar ljóst var eftir EM í jánúar, að Alfreð gíslason myndi hætta með landsliðið, kastaði ég fram þeirri ósk minni að viggó Sigurðsson yrði aftur fengin í starfið, einfaldlega það langbesta sem gæti gerst að mínu áliti.
Jafnframt taldi ég það þó ekki líklegt eftir brotthvarf Viggós (2005 eða 6 minnir mig) er hann hætti með heldur leiðinlegum aðdraganda, pressu og fleiru.
En nú þegar viggó gefur í skyn að hann sé aftur til í að þjálfa liðið, Ætti HSÍ ekki að hika eitt andartak, heldur byrja strax já að spjalla við Viggó, líkt og Guðjón Þórðar í fótboltanum er Viggó vissulega ekki barnanna bestur oft á tíðum, en afburðasnjall í sínu starfi, sannur sigurvegari!
mbl.is Viggó Sigurðsson: Ég myndi tala við HSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Magnús Geir

Nei þessi rommsari var hvorki fljóð né með rautt hár. Þetta var´Gísli Sigurðsson prófessor á Árnastofnun. Svo finnst mér mjög gaman að fá tækifæri til að útskýra þjóðháttafræðingur og þjóðfræðingur. Þjóðfræði er yfirheiti, undirgeinar eru þrjár: þjóðháttafræði sem tekur fyrir matar-fata-, og húsagerð. Þjóðsagnafræði sem fjallar um sögur, ljóð, vísur, brandara - það sem hægt er að setja á bók og þjóðlífsfræði sem fjallar um siði, hjátrú sem við þjóðfræðingar köllum reyndar þjóðtrú, hátíðir og þessháttar. Ég held að andlegt ofbeldi barnaskólakennara míns þegar hann gerði ítrekaðar tilraunir til að draga ,,Réttarvatnið" upp úr mér við skólatöfluna hafi haft svona alvarlegar afleiðingar að hæfileikar mínir til utanaðbókarlærdóms löskuðust fyrir lífstíð. kv. KE

kristin einarsd. (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:25

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég tvílas fyrri athugasemd, endurhressti tvisvar Eldrefinn minn, til að vera eiginlega viss um að vera sjálfur að athugasemdast við rétta færslu.

Þú fyrirgefur mér þá ef að ekki framkemur en ég er sammála þér með hann Viggó, þrátt fyrir að hafa nú einu sinni verið hælbein undir hans þrælbeini.

Þar sem við erum sammála um það & margt annað sem að kenna má við okkur boltana, þá býð ég þér hér með dús.

Með von um vænar viðtökur.

Steingrímur Helgason, 20.2.2008 kl. 23:51

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Heil og sæl Krístín og kærar þakkir fyrir útlistunina og á fræðunum og innsýnina litlu inn í bernsku þína!

Hélt sem snöggvast já, að þetta hefði getað verið frú Ólína, sem þarna hefði verið á ferð, aldeilis heyrt hana oft kveða!

Hún kennt þarna í skólanum eitthvað veit ég, en er örugglega Þjóðháttafræðingur frekar en Þjóðfræðingur, nema hvortveggja sé!?

Sömuleiðis oft heyrt í gísla í útvarpinu við ýmis tækifæri, en ekki að kveða svo ég viti eða muni.

En hitt þykist ég vita, að þessi undirfög vilji skarast stundum, Árni karlinn Björns rætt og skrifað um margt fleira veit ég en sem nemur þjóðháttafræðinni, húsum,mat o.s.frv.! Hef heyrt hann bæði tala um slík efni auk þess að ræða kveðskap og þess háttar. Á hann meira að segja syngjandi á plötu, sem hann og Guttormur Guttormsson m.a. gáfu út og sungu á m.a. með Bellmanssöngvum!

Magnús Geir Guðmundsson, 21.2.2008 kl. 15:29

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hahaha Steingrímur minn, þér er ekki fisjað saman, en hvurn gremil varstu að hlunkast sem hælbeinungur Meistara Viggó?

Að kasta til höndum með knetti?

En bæði þér og Kristínu ´þjóðhögu er fyrirgefið að skutlast inn á þessa færslu og þér Haugnum á Haugi sömuleiðis fyrirgefið orðsnakk fleir!

Og þú munt nú sjá vort göfuga heiti naglhamrað innan um annað bloggeríisgullið þitt!

Magnús Geir Guðmundsson, 21.2.2008 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 217985

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband