Arsenal er samt betra!

Nú er mér spurn, sem stundum kemur fyrir.
Kemst litli röflarinn Ronaldo nokkuð aftur í liðið á næstunni og á hann það nokkuð skilið eftir slappleikan sérsta´klega á móti grönnunum í Man. City?
Hinn fótalipri Fletcher sýndi slíkan stórleik í dag, að mér finnst þetta góð spurning!
Og hvers á já skotin eiginlega að gjalda að hafa ekki komist nema örsjaldan í liðið í seinni tíð, en reynist svo þetta góður!?
Legg til að Hermann nokkur Gunnarsson verði rekin úr aðdáendaklubb United, en vart hefur annar maður talað jafn háðuglega um einn leikmann í sínu uppáhaldsliði! Andstæðingar United ekki einu sinni gert það!
Nú, samt er Arsenal betra lið og þeir vinna deildina örugglega held ég nú!
mbl.is Man Utd tók Arsenal í kennslustund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snillingurinn "Ronaldo" fékk kærkomið frí í dag, átti það svo sannarlega skilið enda besti leikmaður heimsins í dag, en kemur að sjálfsögðu aftur í liðið í Meistaradeildarleiknum í vikunni.  Innkoma Fletchers sýnir breyddina í liðinu og hann fær örugglega fleiri tækifæri á næstunni hjá Ferguson, dæmigerð vinnubrögð hjá  stjóranum, nær oftast því besta úr sínum mönnum þegar á þarf að halda. Það liggur fyrir Arsenal eftir þessa háðulegu útreið, að vera slegnir út úr Meistaradeildinni í vikunni, og springa síðan endanlega á limminu í deildinni á næstu vikum og þá fer titillinn þangað sem hann á heima        OLD TRAFFORD

jon Bragason (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 22:02

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þetta er nú full mikil óskhyggja Jón minn góður, antar allt raunsæi í þetta!

Og eitthvað hefur nú skort á breidd í síðustu tveimur deildarleikjum, hvar var Fletcherinn þá?

Jú, hann var úti í kuldanum!

Magnús Geir Guðmundsson, 16.2.2008 kl. 22:11

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Minn góði Guðjón viðar,þú ferð nú aldrei þessu vant nokkuð villur vegar! Ég er nú reyndar engin sérfræðngur í Unitedisma, en vörnin var nú í heild eins og hún hefur lengst af verið í vetur og það sterkust!Fyrirliðin Neville að vísu verið frá lengst af, en óþekki strákurinn Brown hefur bara leyst hann svo vel að hólmi að Gary hefði ekkert komist í liðið hvort sem er! N'u Carrek spilaði stóra rullu á sl. tímabili er liðið tók titilinn, svo það er nú alls ekki hægt að tala um B-lið hjá ykkur í gær!Fletcher spilaði sömuleiðis töluvert mikið á sl. ´timabili.

Magnús Geir Guðmundsson, 17.2.2008 kl. 15:31

4 Smámynd: Hermann Ágúst Björnsson

Ljóst var að þegar liðin voru kynnt að Sir Alex hafði gengið skrefinu lengra en kollegi hans, einu ef ekki tveimur, hafandi Ronaldo, Hargreaves og Giggs ekki í liðshópnum, Tevez, og Scholes á bekknum og þó að Scholes hafi komið inná í seinni hálfleik þá var staðan þá orðin 3 eða 4-0 man það ekki alveg. Svo var náttúrulega hrísgrjónabóndinn Park ekki að spila vel frekar enn fyrri daginn, en Fletcher spilaði sinn besta leik á ferlinum. Eboe(?)  sauður leiksins með glórulaust brot á Evra. Og svo þetta þarna með að Ronaldo komist ekki í liðið aftur er einhverskonar misheppnuð tilraun til brandara býst ég við? Neville ekki með, en Brown spilaði ágætlega, langtum betur en undanfarið og mér finnst þú gjörsamlega skjóta þig í fótinn með að segja að Arsenal sé "samt betra"

Skeindu þér!

Hermann Ágúst Björnsson, 17.2.2008 kl. 18:25

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Merkilegt er hvernig sumum tekst með lítilli fyrirhöfn að láta hafa sig af fíflum!?

Magnús Geir Guðmundsson, 17.2.2008 kl. 21:21

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Nei nei, Arsenal er ekkert betra en MU, Magnús Geir. Þetta er leiður misskilningur sem hefur tekið sér bólfestu í hugum og hjörtum einstaka myndarmanna norðan heiða. Þetta er ekki búið, spyrjum að leikslokum.

En í kvöld tek ég hliðarspor og held með Liverpool... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 19.2.2008 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 217998

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband