Hóhóhó, það eru að koma jól og félagi Jens er í fréttunum!

Í hátt á annan áratug höfum við hugsuðurinn og þúsundþjalasmiðurinn Jens þekkst, bæði gegnum tónlistarbrölt beggja af ýmsu tagi og af fleiri ónefndum ástæðum!
VArð mér snemma ljóst að í brjósti hans hafði snemma hreiðrað um sig lítill stríðnispúki eða ári, sem alltaf annars lagið varð að láta á sér kræla! Það hefur hann einmitt að eins gert varðandi þessi skrif hans um birgittu, en þó allsalls ekki með þeim hætti að vera særandi eða persónulegur á neinn hátt! Ýmsir hafa þó reynt að blása þetta upp, gert risastóran úlfalda úr mýflugu satt best að segja, en það hefur nú ekki komið að sök frekar en flest sem Jens hefur strákskapast með!
En svona er þetta bara, sumir eru viðkvæmari en aðrir og það alveg úr öllu hófi fram!
Hér var Jens svo ekki heldur að tala um neitt sem hann hefur ekki vit á, er sjálfur á fullu að markaðssetja slík krem og selja!
Og Birgitta blessunin tók þessu auðvitað létt og af skynsemi, enda ekki nema von, fær góða auglýsingu út á þetta stúlkan svona mitt í því að hún er að basla í útgáfu á fyrstu plötunni sinni undir eigin nafni fyrir jólin!

mbl.is Fannst Birgitta Haukdal of gul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég vann nú lengi undir stjórn Guðmundar heitins faðir hans Jens, sem var mikill yndæliskall og sómamaður, Fjóla móðir hans hefur spáð fyrir mér og frá henni stafaði ekkert nema hlýja, þá er Sæunn systir hans yndælismanneskja og einhvern tíman í gamla daga var ég stundum á fylliríi með Stefáni bróður hans og miðað við þetta yndælisfólk þá hlítur Jensinn að vera hið þokkalegasta eintak af manni, hann er umdeildur og stríðinn en það er bara betra.

Bubbi j. (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 20:59

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jájá Bubbi, þú hefur lög að mæla, mín kynni af kappanum hinum bestu, ekkert undan þeim að kvarta!

Sama hef ég svo að segja um fólkið hans sem ég hef kynnst, ekkert nema gott um það að segja!

Þau þrú, Guðmundur, Stefán og Sæunn, hafa þá öll unnið með þér eða verið samtíða á Verksmiðjunum í gamla daga heyrist mér!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.12.2007 kl. 22:42

3 identicon

jebb

Bubbi j. (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband