Svo lengi sem böggull fylgir ei skammrifi...

...að engar skuldbindingar eða að bankin telji sig eiga "hönk upp í bakið" á forsetanum eða embættinu sem slíku, þá er ég alveg sáttur við þessa málavöxtu!
Fyrir utan þennan fund með forseta Kína, má það ekki gleymast heldur, að Ólafur Ragnar er sérstakur verndari íslenska liðsins eða eitthvað slíkt emmeð meiru! Og svo finnst mér líka, að hann komi eitthvað nálægt stjórn þessara leika, sitji kannski í henni, en man það ekki alveg.

mbl.is Ólafur Ragnar flaug til Kína í boði Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Talandi um spillingu.... nú er kominn tími til að reka Ólaf forseta vorn.

Kveðja úr austurvegi.

Bjössi (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 20:45

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og hvernig gerum við það, Bjössi í austurvegi?

Magnús Geir Guðmundsson, 7.10.2007 kl. 00:12

3 Smámynd: Hjalti Garðarsson

Þú veist alveg hvernig kerfið virkar Magnús.  Ef ég býð þér út að borða, þá áttu léttara með það að bjóða mér í leikhús.  Ekki reyna að segja mér að Glitnir eigi ekki eftir að rukka þetta inn.

Ef dagskrá Forseta Íslands er þannig sett upp, að hann þurfi að húkka sér far til þess að komast á milli atburða, þá held ég að best sé að reka þann sem skipuleggur dagskránna.

Hjalti Garðarsson, 7.10.2007 kl. 09:52

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hann þurfti þess reyndar ekki endilega, en hefði bara komið of seint öðruvísi!Flugið var ekki sérstaklega sett upp fyrir forsetan, sé því ekki í fljótu bragði hver hans sérstaki greiði í staðin ætti að vera.

En er alveg sammála því, að þegar svona hendir er það óheppilegt og gefur vangaveltum um þetta og hitt, byr undir báða vængi!

Magnús Geir Guðmundsson, 7.10.2007 kl. 22:12

5 Smámynd: Jens Guð

  Ég hef aldrei kosið ÓRG en tel hann hafa staðið sína plikt næsta vel.  Ég er andvígur því að við séum með embætti forseta.  En ÓRG hefur samt sem áður afgreitt það hlutverk sitt betur en að ég geri kröfur til embættisins.   

Jens Guð, 8.10.2007 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 217986

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband