Hyllum Forseta vorn!

Eins og yfirgnæfandi hluti kjósenda, hef ég í stórum dráttum verið ánægður með Ólaf Ragnar í Forsetaembættinu!
VAr þess þó vel meðvitaður og lá ekki á þeirri skoðun þó, að menn yrðu að horfast í augu við það að ef stjórnmálamaður yrði kjörin að nýju, yrðu ef til vill og nánast örugglega deilur og þarf nú ekkert að taka fram að svo varð og heldur betur hressilega!
En þarna fyrir 11 árum var hann bara langbesti kosturinn!
Þetta sem og margt annað, fer sjálfsagt fyrir brjóstið á einhverjum, en mér finnst ólafur Ragnar hafa staðið vel í megindráttum varðandi þessi umhverfismál öll saman og halda á lofti þessum hugsanlegu slæmu afleiðingum af mengun af manna völdum á loftslagið!
N'u er svo bara spurningin þegar þriðja kjörtímabilið er langt komið, hvort Ólafur og hans yndislega frú, vilja "taka slagin" fjögur ár í viðbót!?
Þjóðin sjálf af stærstum hluta áreiðanlega alveg til í að hafa hann áfram!
mbl.is Forseti Íslands verðlaunaður fyrir baráttu gegn loftlagsbreytingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, fín tala hjá þér Hlynur minn, auðvitað var ég líka að vonast eftir slíkum, stríðnisskrattakollurinn ég!

En ég get varla hugsað mér skárri "Skrepp" en þig til að vera sammála um að vera ósammála, SAMÁLA!?

SVo er br´ðurpartur þjóðarinnar og reyndar viðskiptalífið heldur ekki alveg í það minnsta sammála þér, en förum ekki nánar út í það!

Magnús Geir Guðmundsson, 24.9.2007 kl. 16:33

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

En erum nú oftast sammála um að vera sammála!

Magnús Geir Guðmundsson, 24.9.2007 kl. 17:44

3 Smámynd: Jens Guð

  Ég hef aldrei kosið Ólaf Ragnar.  Ég er í grundvallaratriðum andvígur forsetaembættinu sem slíku.  Ég kannast þó lítillega við manninn.  Hann er leikari og það nokkuð góður.  Hann á auðvelt með að setja sig í hlutverk.  Ég hef þegið heimboð hjá honum til Bessastaða. 

  Þrátt fyrir andúð mína á embættinu þá er ég sáttur við frammistöðu Ólafs Ragnars í því leikriti.  þegar að við í Gramminu settum upp á sínum tíma hljómleikana "Við krefjumst framtíðar"(með Crass,  Megasi,  Bubba og fleirum) þá bað ÓRG okkur um að fá að ávarpa samkomuna.  Ég hafnaði því á þeirri forsendu að hljómleikarnir ættu að vera þverpólitískir. 

  ÓRG tók því vel og af skilningi og bað mig um að færa Ása í Gramminu hlýjar kveðjur.   Hann hélt áfram að sýna okkur Grömmurum áhuga.  Eitt af hans fyrstu embættisverkum var að veita Björk orðu.  Næst veitti hann Ása orðu.  Ég efast um að ÓRG hafi eða sé að hlusta á það sem að við gáfum út hjá Grammi eða síðar Smekkleysu (ég tilheyri ekki Smekkleysu vel að merkja).  En hann allavega hefur skilning á því frumkvöðlastarfi sem að Gramm og Smekkleysa hafa unnið fyrir íslenska jaðarmúsík á alþjóðavettvangi.  Það kann ég að meta. 

Jens Guð, 25.9.2007 kl. 01:41

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk fyrir ágæta skýrslu Jens hinn djúpúðgi!

Kannast nú aðeins við manninn líka, kemur vel fyrir!

En ætli þú verðir þá ekki bara næstur karlinn, að verða kallaður til Bessastaða, hver veit!?

Magnús Geir Guðmundsson, 25.9.2007 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband