Landi og þjóð til sóma!

Það hefði verið frábært ef Rögnu hefði tekist að koma leiknum í oddalotu, en heppnin var ekki með.
Framistaðan hins vegar afbragð og nú sem ætíð fyrr var Ragna sannarlega landi og þjóð til mikils sóma!

Ég hef verið mikill aðdáandi hennar um langt árabil og það verður mikil eftirsjá af henni, aðeins 29 ára gamalli. og eftir situr svo í þankanum einn skuggi skammar því miður varðandi hennar feril, það er að hún skuli hafa verið sniðgengin gróflega árið 2007 í kjöri á Íþróttamanni ársins.
Það var engum vafa undirorpið, að Ragna var sá einstaklingur sem staðið hafði upp úr það árið hvað árangur snerti, en vegna kaldhæðni örlaganna og aumingjaháttar íþróttafréttamanna, varð fótboltastúlkan (sannarlega knáa) Margrét Lára Viðarsdóttir fyrir valinu, svo meint rangindi í garð hennar í öðru vali, kynsystra hennar á fótboltakonu sama árs, yrðu nú "leiðrétt?!" (sú sem hlaut nafnbótina það árið var Hólmfríður magnúsdóttir)
Oft hefur þetta kjör nú orkað tvímælis, en þarna tók steininn úr fyrir mína parta og hefði þá strax átt að koma á nýju kjöri í marktækari mynd að hjálfu OL-ÍSÍ, sem nú eftir kjörið síðasta er hneykslaði marga, er víst til ígrundunnar.

En þrátt fyrir þetta stendur Ragna auðvitað keik og er það von mín að henni vegni áfram vel í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur!


mbl.is Ragna leggur spaðann á hilluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ótrúlega leiðinlegt að heyra að hún ætli sér að hætta.... maður er rétt að kynnast henni sem frábærri íþróttakonu og var farin að hlakka til að fylgjast með henni á næstu leikum. En hún skemmti mér og fjölmörgum í kvöld með stórkostlegri frammistöðu. - Óska henni alls hins besta.

Jona Dora (IP-tala skráð) 31.7.2012 kl. 23:31

2 identicon

Well done Ragna...... From a small Nation such as Iceland, what you achieved is brilliant.......You should be very proud of what you did. Let your Nation celebrate with you ... Well done Girl !!!

Fair Play (IP-tala skráð) 1.8.2012 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband