..en halda mætti að Steingrímur væri sjálfur í henni?!

Ekki stendur frekar en venjulega á furðulegum viðbrögðum formanns B að hinu minnsta tilefni!
Það skilja allir sem skilja vilja, að það er ekki einhver föðurlandsást eða rík réttlætiskennd sem stjórnar gerðum hjá stjórnarandstöðunni, heldur hrein og klár tækifærismennska og lýðskrum. Í orði hafa þessir flokkar viljað ná betri lausn og samningum við Breta og Hollendinga og fengu í sáttaskyni m.a. sinn fulltrúa í nýju sáttanefndinni, en þótt það hafi allan tíman legið fyrir að nú gæti fengist betri lausn og öllu sanngjarnari hafa þessir flokkar með sinn fulltrúa beinlínis unnnið gegn því þó það sé himinhrópandi að þjóðaratkvæðagreiðslan væri óþörf við slíka lendingu. En það má ekki heyrast og þessi marklausa atkvæðagreiðsla skal fara fram því það hentar þessum flokkum í núinu á hinum pólitíska vígvelli, en er alls óvíst að skili nokkru fyrir þjóðarhag, verði henni jafnvel til skaða?!

mbl.is „Tek þetta ekki til mín“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einu gleymir þú algerlega sem er að ef málinu hefði ekki verið vísað til þjóðarinnar þá værum við ekki að semja um eitt né neitt. Nú eru líkur á því að við náum betri samningi þó ekki víst.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 18:03

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Er  bara ekki allt í lagi hjá þér kallinn minn !

Ertu á móti beinu lýðræði þegar það hentar ekki þröngum eigin flokkshagsmunum þínum eða ertu bara svona þrælgrónn og fastur í þessu íslenska flokkshesta-hagsmuna kerfi að þú virðist bara aldrei geta opnað munninn hér öður vísu en að tala eins og róbót eða svona eins og hlægilega og samviskusamlega forritaður Samfylkingarpáfagaukur !

Gunnlaugur I., 5.3.2010 kl. 18:05

3 identicon

Mangi minn !

 Fyrir augnabliks ógæfu sitja við völd á Íslandi í dag, huglausustu forystumenn sem farið hafa fyrir landi síðan það fékk heimastjórn !

 Það  er ekki nóg með að tvíeykið gefist upp baráttulaust, heldur láta þau boð út ganga til gömlu nýlenduþjóðanna, að þau KRJÚPI ,kyssi vöndinn - og sitji heima !!

 Burt með þetta ógæfulið !

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 18:08

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Föðurlandsástin lekur af St.og Jó.  Sigmundur er einn allra besti fulltrúi stjórnarandstöðunnar.

Helga Kristjánsdóttir, 5.3.2010 kl. 18:13

5 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Ágæta fólk.  Hvar í ósköpunum hafið þið alið manninn undanfarin ár?

Þorkell Sigurjónsson, 5.3.2010 kl. 18:24

6 identicon

Vil bara benda á að Steingrímur sagði "eru í samningaLIÐINU"

Þegar Sigmundur Davíð (sem ég reyndar tel versta stjórnmálamann landsins um þessar mundir) var spurður hvort hann tæki þetta til sín sagði hann: Ja...ég er nú ekki í samningaNEFNDINNI, þannig að varla hefur hann verið að vísa til mín......

Það er stór munur á samningaliði og samninganefnd. Sigmundur Davíð er klárlega í samningaliðinu þó að hann sé ekki í sjálfri samninganefndinni.

Vona svo að fólk sem setur x-ið við   "Nei, þau eiga að falla úr gildi" skilji að þau eru að hafna því að lög nr. 1/2010 öðlist gildi. Þau eru ekki að kjósa um "Við borgum ekki Icesave" eða "stjórnin á að segja af sér"

Þrasarinn (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 18:51

7 identicon

Látið ekki svona.  Þið sem viljið borga IceSave fyrir Bjöggana, getið bankað uppá hjá þessum glæpahundum og boðist til þess að gera það beint.  Látið svo okkur hin í friði sem teljum okkur ekki eiga að bera þær byrðar í gegnum skattheimtu ríkisins.

Melur (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 19:06

8 identicon

Miða við hvað íslendingar eru illa gefnir þá væri ég ekkert hissa að þeir merki við JÁ á kjörseðlinum þar sem þeir telja spurninguna vera "á að fella lög nr 1/2010  úr gildi?"

AA (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband