Þetta er orðið verulega spennandi og er afar sögulegt!

Kannski er fólk almennt fyrst núna að gera sér grein fyrir því hvað þetta er virkilega frábært hjá kvennalandsliðinu, að vera komin þarna í úrslitakeppni EM í Finnlandi!
Auðvitað ekkert gefið og víst að riðillinn er svakalegur, en hvað sem því líður og hernig sem fer, þá er maður óumræðilega stoltur af þessum stelpum
Og kannski vinna þær bara á morgun, hver veit? En möguleikin er líka á tapi, jafnvel slæmu, en fyrirfram kemur það auðvitað ekki til greina.

Áfram Ísland og allir við sjáinn kl. fimm á morgun, 17.00!


mbl.is EM: Sama þó Íslendingar skori fjögur mörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vandamálið með þetta er að það er verið að blanda einhverjum feminisma í þetta landslið okkar.

Er ekki Þóra Tómasdóttir (systir Sóleyjar Tómasdóttur róttæks feminista) á bak við myndina um kvennalandsliðið?  Heyrði jafnframt að fleiri feministar úr innsta hring feministaelítunnar hefðu komið að gerð myndarinnar.

Þetta veldur því að ég og félagar mínir munum hunsa þessa bíómynd og einnig allt sjónvarpsefni tengt kvennalandsliðinu.

Tíusinnum (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 05:32

2 identicon

Eina manneskjan sem virðist vera blanda feminisma í málið ert þú. Staðreyndin er einfaldlega sú að hér um afreksmanneskjur í íþróttum að ræða og fyrir það eiga þær stuðning skilið.    Þóra Tómasard er einfaldlega sjónvarpsmanneskja að gera mynd um íþróttafólk, rétt eins og margir aðrið sjónvarpsmenn.

svo ég held að það sé óþarfi að vera kasta fram svona sleggjudómum og reyna frekar að hafa mannsæmandi vit til að minna félaga þína á það líka, og styðja svo bara íþróttafólkið okka. 

Áfram Ísland Í EM 

h. Rán (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 10:50

3 Smámynd: Gunna-Polly

veit ekki betur en það hafi verið gerð heimildamynd um karlalandsliðið í handbolta er það þá karlrembur sem gera það ?Tíusinnum hættu þessu endemis bulli og leifðu okkur sem viljum að vera stolt af þessum frábæra árangri kbennalandliðs okkar að komast á EM

Gunna-Polly, 24.8.2009 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 217983

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband