Aumingja, aumingja yfirgefni og svikni sjálfstæðisflokkurinn!

Mikið er hann Gulli gamli sjálfsmarksskorarinn glaður og reifur í þessum ummælum, finnst ykkur ekki, að ég tali nú ekki um rökfastur og sannfærandi!?
Formaðurinn hans gaf upp boltan með þessa "glæsilegu "áróðurstækni" áðan eftir að endalok stjórnarinnar voru gjörð kunnug og það á aldeilis að ganga í þjóðina heyrist mér, að eins og alltaf áður hafi D staðið traustur með sannleikan sín megin og það hafi alls ekki breyst nú, ónei ónei!
En trúa menn því í alvöru að fólk kaupi þessa dellu, hinn stóri og mikli sjálfstæðisflokkur hafi nú bara verið skilin eftir sem svikin eiginkona í tryggðum, því eiginmaðurinn reyndist svo óstöðugur og vínhneigður, eða hamingjan má vita hvað!?
Þvílíkt bull og vitleysa, en þeir um það.
Þó ætlast þeir til að fá að leiða þjóðstjórn sakleysingjarnir og telja bara eðlilega kröfu eftir allt sem á undan er gengið!?
Þetta er eiginlega í aðra röndina alveg sprenghlægilegt, eins alvarlegt og staðan annars er!
mbl.is Samfylkingin ekki starfhæf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Aumingja Gulli

Hólmdís Hjartardóttir, 26.1.2009 kl. 14:54

2 identicon

Eigum við ekki að núa hlutverkunum við! Sjálfstæðisflokkurinn er karlkyns og Samfylkingin kvenkyns? Oft er flagð undir fögru skinni, hmmm? Kæt kveðja, Þorgils Hlynur Þorbergsson.

Þorgils Hlynur Þorbergsson (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 15:05

3 identicon

snúa

Þorgils Hlynur Þorbergsson (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 15:06

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

og aumingja við, ég, þú og þjóðin!

EF þú ert með forystumennina í huga Þorgils, þá mætti kannski snúa þessu við, en það er í sja´lfu sér aukaatriði, ég vona allavega að meiningin fari ekki á milli mála.

Að hefja upp svona málflutning nú er að minnsta kosti ekki viturlegt og að í alvöru menn haldi að þetta hljómi vel til þess fallið að þeim verði svo falið að vera í forystu í hugsanlegri þjóðstjórn fram til kosninga!?

Magnús Geir Guðmundsson, 26.1.2009 kl. 15:39

5 identicon

Nei, Magnús, þetta er rétt hjá þér — ég fór svolítið óvarlega í málflutningi mínum. Ég biðst fyrirgefningar á því. Það er ekki gott að segja hvernig þetta fer. Guð láti bara gott á vita. Kær kveðja, Þorgils Hlynur Þorbergsson.

Þorgils Hlynur Þorbergsson (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 17:39

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Allt í góðu, en engin ástæða til að biðjast fyrirgefningar lagsmaður!

Magnús Geir Guðmundsson, 26.1.2009 kl. 17:57

7 identicon

Þetta var því miður brandari sem hefði auðveldlega mátt misskilja. Aðgát skal höfð í nærveru sálar, ekki síst á viðsjárverðum tímum. Vonandi komast formenn „fyrrum stjórnarflokka“ til fullrar heilsu sem fyrst. Kær kveðja, Þorgils Hlynur Þorbergsson.

Þorgils Hlynur Þorbergsson (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 19:16

8 identicon

Guðlaugur er og hefur alltaf verið eins og heimdellingur í morfís keppni. Semsagt: pólitískur skallapoppari, eins og lærifaðir hans Davíð. Annað er ekki hægt að segja í tilefni af þessari öfugmælavísu hans.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 20:35

9 Smámynd: arnar valgeirsson

því miður hefur stjórnin verið afleit hjá spilltum sjálfstæðisflokki og samfylkingu sem er tækifærissinnaðasti flokkur ever. fagra ísland breyttist í fimm álver kortéri eftir kosningar.

gott að þetta er búið og steingrímur vinur okkar tekur til hendi. vonandi.

arnar valgeirsson, 26.1.2009 kl. 21:31

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Kjarnyrtur ertu sem oft fyrr Húnbogi haha!

Við sjáum hvað setur, Arnar minn mikli Leedsari! (og KA maður líka!)

Magnús Geir Guðmundsson, 27.1.2009 kl. 01:37

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Hummm nú væri ég til í rökræður en mér ferst það ekki vel í skrifuðu formi

Solla Guðjóns, 27.1.2009 kl. 13:30

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

VArla þó við mig heillin, en kannski við VG strákana hér að ofan!?

Átt samt að láta orð falla þegar þér líkar!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.1.2009 kl. 14:11

13 Smámynd: Hlynur Hallsson

Góður Maggi:)

Hlynur Hallsson, 29.1.2009 kl. 00:09

14 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk Hlynur minn, er svona alveg bærilegur stundum!

Magnús Geir Guðmundsson, 30.1.2009 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 217998

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband