En hvað um þeirra eigin "Lífsins LOÐFELD"!?

Já, ég bara spyr, hví þessa tepru, af hverju voru þær eiginlega að þvælast í þessum nærbrókum einum, er hinn sanni staður og uppsretta hlýinda og skjóls er einmitt kjörið sýnidæmi og tákn fyrir þessa baráttu!
(auk velgróina handarkrika líka mætti ætla!)
En nei, skýringin kannski augljós, inngrip í náttúruna sjálfsagt átt sér stað að hætti og venju ungra nútímakvenna í þágu "snyrtimennsku" meðal annars!?
Og krikar sömuleiðis lítt áberandi loðnir heldur gæti ég best trúað, en eit samt ekki, hef ekkert séð þessar píur og mun ekki gera!
En samt hafa þær áreiðanlega glatt augu margra þarna að drepast úr kulda, þó ég velti því líka fyrir mér hve lengi þær héldu "Skinnsýninguna" út?
Það fylgdi ekki sögunnni að ég fékk best séð.
En, svona ímynda ég mér að ástand mála hafi þróast við sprang hinna léttklæddu erlendu meyja um Lækjargötuna!

ER birtust þær á brókunum,
blessuð stelpugreyin.
Lifnaði yfir "Lókunum,
Lækjargötumegin!


mbl.is Í eigin skinni á Lækjartorgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þær sögðu að þetta væri kaldasta land sem þær hefðu komið til......hafa varla enst lengi.  Kannski hefur einhver hlýjað þeim. Þær voru jú rétt fyrir neðan stjórnarráðið og bleðlabankann..........

  







Hólmdís Hjartardóttir, 28.11.2008 kl. 00:50

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, skammastu þín Dís, að gefa þessa "ósiðsemi" í skyn!En hvað þessar fylgimyndir eiga að þýða veit ég ekkert, kannski grín!?

Nei, líklega ekki enst lengi, en samt hefði verið gaman að vita hversu "Dýrðarsýnin" varaði lengi!

Sæl Dóra litla og velkomin í heimsókn! Þér fannst þær já bara "kappklæddar" með húfurnar? Vissi ekki af þeim "huliðshjúp". En þær eru með þessu að mótmæla íllri meðferð á ýmsum dýrum, t.d. loðdýrum sem alin eru í þröngum búum til slátrunar! Skinnin af þeim svo nýtt í pelsa og annan munaðarfatnað!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.11.2008 kl. 01:22

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Þetta er nú hreint ekki leiðinleg frétt trúi ég ........eða hvað

Solla Guðjóns, 28.11.2008 kl. 02:09

4 identicon

Þær voru fyrir neðan bleðlabankannn, naktar......Þar er komin skýring á því að Davíð mætti ekki á fundinn.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 05:01

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei Solla mín góða, meiri leiððindi hafa allavega birst en þessi STÓRFRÉTT!

Hehe Húnbogi, ert með ALVÖRUSKÝRINGARNAR sem oftar á hreinu!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.11.2008 kl. 09:41

6 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Magnús minn, það hefur greinilega staðið vel á í Bleðlabankanum!!

Rut Sumarliðadóttir, 28.11.2008 kl. 10:25

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Blessuð rut og takk fyrir innlitið!

Hehe, mjög svo ATHYGLISVERÐ orðnotkun hjá þér og kannski hárrétt!?

Magnús Geir Guðmundsson, 28.11.2008 kl. 12:11

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Húnbogi er með skýringuna

Hólmdís Hjartardóttir, 28.11.2008 kl. 12:34

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jamm, enda skýr maður!

Þú ert líka ágæt!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.11.2008 kl. 15:42

10 Smámynd: Jens Guð

  Þetta með "Lífsins loðfelld" minnir mig á færeyska ákavítið Lívsins vatn.  Reyndar var mér sagt að dömurnar hafi borið á sig einhvern vökva eða krem sem heldur kulda eða hita frá sér.  Þetta ku vera efni sem fólk ber á sig sem stundar sjóböð og söngvari Rammstein ber á sig áður en hann kveikir í sér á sviði.  Annars veit ég ekkert um þetta.  Kannski er þetta lýgi.  Hinsvegar ætla ég að fyrir stelpu frá Kaliforníu og aðra frá Ástralíu sé töluvert kalt á Íslandi þessa dagana.

Jens Guð, 30.11.2008 kl. 01:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband