Flest orkar tvímælis þá gert er!

Sem ég var í rólegheitum að ryksuga fyrr í dag (já stelpur, ég er einn af þessum "sjáldgæfu hvítu hröfnum og eftirsóknarverðu sem gera það með glöðu geði) raulandi eitt af svona á að giska eitt af fimmhundruð vinsælustu rokklögunum mínum, Ridin' On The Wind með Judas Priest, fór ég um leið að hugsa djúpt og í fullkomnu samræmi við lagið, um handboltaævintýrið okkar og allt hafaríið fyrir og eftir og á meðan það stóð!
Til dæmis um þetta sem elsku drengurinn hann Ingvar er að nöldra um hjá sér.

http://ingvarvalgeirs.blog.is/blog/ingvarvalgeirs/entry/625409/

Þetta er nú svona svolítið gömul tugga þarna á ferð, um að "menn eigi nú að borga fyrir áhugam´l sín sjálfir" og svo í athugasendum frá honum sjálfum og skoðanabróður til dæmis að "fé sem sett er í slíkt sé mest frá þeim sem vildu að peningarnir færu í annað" og "að það jafngilti nær þjófnaði þegar peningum með þessum hætti væri úthlutað" að setja þessar fimmtíu millur í HSÍ í tilefni að silfrinu í Kína!
og nú þegar harnaði í ári og vissulega væru stéttir eins og Lögreglan og Ljósmæður óánægðar m.a. með sín kjör, þá væri þetta enn frekar ekki forsvaranlegt.
Það er auðvitað sjónarmið sem á rétt á sér, að gera þurfi vel við þessar stéttir og fleiri sem leika lykilhlutverk í samfélaginu okkar. En að spyrða þessa fjárveitingu á stund þjóðarfagnaðar við það, finnst mér nú ekki alveg við hæfi.
Um svo einstakan viðburð er að ræða, að mér finnst þessi peningur þótt fimmtíu milljónir ekki nema sjálfsagður viðurkenningarvottur fyrir hönd þjóðarinnar. En auðvitað geta einstakir þegnar líka sett í púkkið til viðbótar og það hafa þeir gert, sem og stórir styrktaraðilar landsliðsins, m.a. Kaupþing.
Þessa stjórnarviðurkenningu til HSÍ er ekkert hægt að eyrnamerkja sem einvherja "Hoppýstyrkingu" og jafnvel þó svo væri, þá væri það í mínum huga allt í lagi, ríkið stendur hvort sem er í slíkum fjárveitingum út og suður og við það margt gera engir athugasendir.
Það er líka staðreynd, sem menn verða nú að horfast í augu við, að afskaplega erfitt eða nær ómögulegt er að reka menningar- lista- og íþróttastarfsemi án aðkomu hins opinbera, það viðurkenna held ég flestir nema kannski helst hægriharðlínuhausar!?
Væri ekki alveg eins lag, að hætta þeirri stefnu að borga fólki fyrir að eiga börnin sín? Það stundar nú margur maðurinn og konan að búa til börn, en er ekkert sem skildar til þess, en er þó gert til ánægju- og hamingjuauka. En hví að borga fólki bætur fyrir það og af væntanlega mínum sköttum, sem ég vildi miklu frekar að færu í annað!?
En eins og segir í fyrirsögninni, þá orkar auðvitað flest (ef ekki bara næstum allt?) tvímælis þá gert er, ekki bannað að gagnrýna þessa fjárveitingu frekar en aðrar, en svolítið finnst mér samt fyndið að á sama tíma og menn vilja gagnrýna þetta, þegja menn þunnu hljóði yfir meintu bruðli Íþróttamálaráðherrans upp á 5 eða 6 millur samtals í eigin þágu, maka og ráðuneytisstjóra, í formi tveggja ferða til Kína!
Ingvar minn elskulegi virtist ekki einu sinni kannast við þessar millur er ég minntist á þær hjá honum!?
Látum nú vera að hún hafi farið í hið fyrra skipti, en að geysast út aftur og það eins og venjulega þegar hún hefur gert slíkt áður, bara til að sjá handboltaliðið tapa!Það hefur nefnilega svo ég man, na´nast undantekningarlaust verið raunin er hún hefur spókað sig með Kristjáni sínum á fremsta bekk, að liðið hefur tapað í slíkum stórleikjum!
Nú, svo gæti ég bætt við frekari vangaveltum og leiðindum þeim sem sérstaklega nokkrar konur hafa verið með á blogginu um hana Dorrit forsetafrú, leyft sér til dæmis að líkja henni saman við ógæfusnótina Paris Hilton (sem t.d. hefur orðið uppvís að mikilli vímuefnaneyslu og lögbrotum) og kallað hana athyglissjúka án minstu ábyrgðar fyrir að láta tilfinningar sýnar og gleði í ljós á handboltaleikjunum m.a., en nenni því varla meir, nema hvað að það er þeim til skammar í sumum tilfellum.
Enda virðist líka svo vera, að fjarvera hennar á heimkomuhátíinni í gær vakti mikla athygli og var frúarinnar sárt saknað!
Kannski kom hún ekki með til Íslands eða eitthvað, veit ekki, en eins og svo herleigheitin komu fyrir, þá var þetta svona og svona held ég og má já alveg deila um, sem og þetta Fálkaorðudæmi,s sem ég sjálfur veit ekki alveg hvort er í raun svo mikils virði.En nenni heldur ekki að röfla mikið meir um það, skiptir mig heldur ekki svo miklu.
Að lokum vil ég þó að eitt komi skýrt fram að gefnu tilefni.
Mikið var víst um kossa sumra kvenna þar og þótti skilst mér sumum allavega nóg um.
ÉG hefði samt ekkert á móti því að fá einn vænan hjá þórunni Svinbjarnar og það miklu frekar en frá öðrum tveimur ónefndum sem lögðu sig víst mikið fram við þetta þarna á sviðinu.
Af hverju?
Það kemur ykkur ekkert við!


mbl.is Beðið eftir strákunum okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, ég held bara að það ætti að setja Þorgerði Katrínu í landsleikjabann, því það er morgunljóst að við værum ólympíu meistarar í dag hefði hún ekki álpast út í annað sinn.....ja hérna hér... og kannski við hæfi að minna fólk á að Ísland tapaði úrslitaleiknum á móti Frökkum og það þý'ðir ekkert að þykjast hafa unnið eins og þetta  kemur mér fyrir sjónir.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 23:56

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko, góður pistill og til hamingju með að vera hvítur hrafn í ryksugudeildinni.

En.. Menntamálaráðherra réði uppstillingunni þarna á pallinum og makar fengu ekki að vera með.  Eins og forsetafrúin sé í hóp með ráðherramökum.  Auðvitað átti hún að vera þarna.  Það er ekki eðlilegt þetta hatur sjálfsæðisforkólfa á Ólafi Ragnari og öllu sem honum tengist.

Ég sé ekkert að því að hið opinbera styrki íþróttastarfsemi enda eru íþróttir eitt það besta forvarnarstarf sem börnum er boðið uppá.  Það má hins vegar dreifast betur í neðri deildir.  En að þessu sinni þar sem handboltastrákarnir voru að skrá söguna finnst mér þeir vel að styrknum komnir.

Ég sé hins vegar enga ástæðu til að eyða milljónum á milljónum ofan í snobbferðir fyrir ráðherra, maka, ráðuneytisstjóra og hvað þetta heitir allt saman.  Seinni ferðin sem farin var átti þetta fólk að borga sjáft.

Andskotans spilling.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.8.2008 kl. 10:34

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Allavega tapast leikirnir yfirleitt þegar hún hendist út í snarhasti eftir að hafa auglýst það rækilega fyrst. Hún má reyndar fara á alla leiki sem hún vill, en á líkt og í seinna tilfellinu núna, að borga það þá sjálf, nú eða láta kallinn bjóða sér, hann hafði víst samkvæmt tekjuáætlun um litlar 20 m. á mánuði á sl. ári!Og sjálf hefur hún alveg þokkaleg laun.

Magnús Geir Guðmundsson, 29.8.2008 kl. 10:35

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk Jenný mín skorinorða, nokkurn vegin á sömu lund þín skoðun og mín, en bara munur á orðalaginu! pældi annars lítið í þessum heimkomufagnaði, en sumt orkaði já tvímælis þar sem fyrr sagði og hvað borgarstjórin var að trana sér þarna fram er t.d. umhugsunarvert.Annars leiðinlegt að allt þetta nöldur og röfl þurfi að gylgja með í allri gleðinni, en svona er það bara.Reyndar ekki út í bláin hjá bubba, að halda mæ´tti að þjóðin hafi í raun unnið OLtitilinn, en þetta var jú samt "næstum því" og sömuleiðis einstakur árangur, þjóð með svo fáa íbúa hefur aldrei unnið slík verðlaun í flokkaíþrótt fyrr, ef ég man það rétt.

Magnús Geir Guðmundsson, 29.8.2008 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 217999

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband