Páskaslátrun!

Hmmmm,herra Ferguson varð að ósk sinni um dómarann, það verður nú að segjast, einhver óróleiki hans eða taugaveiklun hjálpaði nú heimaliðinu erð ég að segja! Núnú, samt kyngjum vér nú þessum ósigri án mikilla herkja,alltaf leitt að tapa jú, en eins og þetta þróaðist föllum vér ei í neitt þunglyndi! Óskum bara sigurliðinu pent til hamingju með sigurinn og ekki orð um það meir!
mbl.is Man. Utd með 6 stiga forystu eftir 3:0 sigur á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Jújú, mörg orð um það meir, það er svo gaman.  En takk fyrir hamingjuóskirnar. Ertu Púlari, Magnús Geir? Nú er að duga eða drepast fyrir Steingrím og hans Razzenal. Við fylgjumst með og tökum stöðuna...

Lára Hanna Einarsdóttir, 23.3.2008 kl. 15:43

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ljótt af þér að stríða Lára Hanna harðbrjósta!

Já, ég er það nú og hef verið frá því ég man eftir mér!

Og nú getur þú strítt Hauganesherranum líka, svei mér þá, en passaðu þig sjálf, Chelsea komið fyrir alvöru í baráttuna! Þetta er ekki komið enn!

Magnús Geir Guðmundsson, 23.3.2008 kl. 19:09

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Neinei, ég er voða góð stelpa. En ég votta alltaf samúð líka - og meina það meira að segja. 
Rétt hjá þér - þetta er ekki komið enn. Spyrjum að leikslokum.
En eins og staðan er akkúrat núna... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 23.3.2008 kl. 19:19

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

...þá er hún ansi góð, vildir þú sagt hafa svo ég botni þetta nú fyrir þig haha!

Og mikið rétt, en leikir við Chelsea og Arsenal enn eftir m.a. svo ýmislegt á líkast til eftir að ganga á áður en yfir líkur, mikið rétt!

Já, svei mér ef þú átt ekki bara eftir að hreppa titilinn "mest aðlaðandi Manchester Unitedaðdáandin 2008", ekki amalegur titill það hahaha!

Magnús Geir Guðmundsson, 23.3.2008 kl. 21:15

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Í vergu meðaltali nær Lára Hanna þeim tiltli óumkeppt.

Steingrímur Helgason, 23.3.2008 kl. 21:32

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þakka heiðurinn, piltar...  en eins gott að Högni sjái þetta ekki. Hann gæti orðið sár! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 23.3.2008 kl. 22:22

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk Steingrímur, en Lára Hanna hin ljúfa, hvaða Högni!?

Magnús Geir Guðmundsson, 24.3.2008 kl. 02:27

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vonandi hefur þú átt notalega páska minn elskulegi Magnús.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 15:33

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

hahaha, Halldór heiti ég nú ekki Guðjón minn! En einvher bið verður já á enska titlinum áfram hjá LFC!

Mín kæra Cesil, hef átt alveg hina ágætustu páska og það án þess að troða í mig súkkulaðieggjum!

Magnús Geir Guðmundsson, 24.3.2008 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 217998

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband