Halló Siv, ég tek lýsi!

Jahá, ég tek sko lýsi, það má hin góða og velklædda Siv vita sem og aðrir landsmenn, einkum og sér í lagi Omega 3 gerðina og hef gert um nokkuð langt skeið!
Samt gæti ég verið skárri í hjartatetrinu og þá kannski sérstaklega HLÝRRI á stundum!
En mikið rétt, þessar fjárans transfitusýrur og annar viðbjóður er grasserandi og við því ber að sporna!
En ég tek nú lýsið með fleira í huga en endilega hjartað!

Á hverjum degi karlinn ég,
kátur tek mitt lýsi.
ER það hefðun hyggileg,
svo hold og andi RÍSI!


mbl.is Mikilvægt að allir taki lýsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég tek líka lýsi,

ljúft svo upp ég rísi.

smyr þá líf og limi

leynist enginn kimi.

Gigt vil burt að víki.

Svo verð' ei móðursíki

hehehehehe... svona upp á grín, en ég tek alltaf lýsi á hverjum morgni til að halda gigtinni í skefjum og hef gert í núna yfir 20 ár.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.1.2008 kl. 14:11

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hahaha mín kæra Ásthildur, þú ert alveg yndisleg!

En að gigtarfjandin hafi í einni eða annari mynd hrjáð þig svo lengi, finnst mér vont að heyra, ÞEkki allt of marga sem hún pínir og það til dæmis nákomna!

Heyra þetta hryggir mig,

heillakellin mín.

Að gigtarfjandinn þjaki þig,

það er ekkert grín!

En hvað sem því líður og hvort lýsið hjálpi, sem ég vona sannarlega hvað gigtina varðar, þá bestu kveðjur vestur og vonandi eruð þið ekki alveg komin á kaf í snjóin!? Orðin ansi mikill hérna!

Magnús Geir Guðmundsson, 31.1.2008 kl. 15:03

3 Smámynd: Jens Guð

  Flott vísan hjá Ásthildi.  Og þínar stökur eru alltaf skemmtilegar líka.  Það gerir líka gott fyrir okkur hér á Norðurhjara að skreppa í ljós.  Ljósin láta líkamann framleiða D vítamín sem kemur af stað upptökuferli á kalki.  Ásamt því að láta heilann framleiða serotin sem vinnur gegn þunglyndi.

Jens Guð, 1.2.2008 kl. 00:05

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Heill og sæll Jens minn frómi og fróði og takk fyrir þín að vanda góðu orð!

Það eru nú tvær hliðar á sólbekkjalegu eins og öllum öðrum málum þó karl minn, læknar eru nú til dæmis eindregið farnir að vara við slíku hjá börnum og unglingum og yfir höfuð að fólk fari nú varlega í þessar sakir! Tíðni sortuæxla og þess háttar hefur nefnilega aukist og má víst rekja það að einhverju til slíkra sólbaða sem og annara undir berum himni!

Veit nú ekki með hina góðu Ásthildi, sem ég var nú búin að gleyma reyndar að er núna aftur í útlandinu, en ef eitthvað þjáir mig ekki er það skammdegisþunglyndi!

Magnús Geir Guðmundsson, 1.2.2008 kl. 09:31

5 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

lýsi hér

Einar Bragi Bragason., 1.2.2008 kl. 10:39

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég þakka hrósið herrar mínir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.2.2008 kl. 11:20

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ekkert að þakka fagra frú Ásthildur, átt þetta skilið!

Já, þú ert skynsamur strákur Saxi!

Magnús Geir Guðmundsson, 1.2.2008 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband