Jæja, hvað segja Manchesteraðdáendur nú!?

Ekki er hægt annað en að óska aðdáendum Man. Utd. til hamingju með frammistöðuna í þessum leik, sérstaklega í fyrri hálfleik!
Á undanförnum vikum hafa þeir nánast verið svo ánægðir með liðið, að titillinn hefur bara verið nú þegar varin strax í nóvember!
Þeir gert grín af sumum öðrum aðdáendum ónefndra liða og skammast yfir þeim með háðslegum hætti, en gera það víst ekki næstu dagana eftir þessi úrslit allavega!
Hefðu þó þegar á heildina er litið skilst mér átt skilið meira, en þetta snýst um það eins og alltaf að skora, nýta tækifærin, en það gekk semsagt ekki í dag og vþí annað tapið staðreynd á tímabilinu!
Einhver myndi segja að vissu réttlæti hefði verið fullnægt frá sl. leiktíð (að mig minnir) er United unnu mikin heppnissigur á síðustu stundu eftir að Bolton hefðu verið mun betri!
Allavega gífurlega mikilvægur sigur fyrir þá í botnslagnum.
Og Ronaldo hvíldur!?
Voru ekki einhverjir að skammast út í slíkt hjá öðrum liðum?
En við þessi úrslit harðnar baráttan við toppin, Liverpool búið að ná United og á eftir mun Chelsea vísast skjótast í annað sætið með sigri á Derby, slakasta liði deildarinnar!

En úff, slátrun hreinlega hjá Everton á liði vinar míns og frænda Gústa, Sunderland!
Hörmulegt!


mbl.is Man.Utd. undir gegn Bolton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ekkert segja þeir enn, hafa ekki einu sinni til að slá smávegis til baka, leiðrétt villuna mína um að Liverpool hafi náð United að stigum! Svo gott er það ekki enn, munar þremur stigum á liðunum, en "púlarar" eiga leik til góða!

Magnús Geir Guðmundsson, 24.11.2007 kl. 18:51

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Blessaður GVV!

Þeir voru reyndar allt aðrir og betri í seinni hálfleiknum víst, eftir slakan fyrri hálfleik, en eins og úrslitin sýna, náðu þeir bara ekki að klára færin sem sköpuðust.

Magnús Geir Guðmundsson, 25.11.2007 kl. 17:12

3 Smámynd: Óskar

Sá ekki leikinn. Er harður ManUtd maður og hef ekki yfir neinu að kvarta. Mínir menn hafa einhvern vegin alltaf náð að koma manni á óvart með óvæntum töpum inn á milli. Mun þó fara að kvarta ef við náum ekki titlinum. Þá munuð þið heyra mig væla.....for sure :)Shit happens og það gerir bara deildina skemmtilegri. Ég mun halda áfram að hæða Púlara, Arsenal menn og fleiri og hafa gaman að því að fá háð til baka. Það er bara hluti af fjörinu :)

Óskar, 25.11.2007 kl. 21:18

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Bíddu bara, MU hefur það fyrir rest. Skynsamir menn spila ekki öllum trompum út strax í upphafi. Nóg eftir að leiktíðinni.

Lára Hanna Einarsdóttir, 28.11.2007 kl. 00:37

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Óskar Freyr tekur þessu hæfilega létt og skynsamlega, kann að meta það!

Lára Hanna, þú ert brött sem margur annar Man. Utd. aðdáandin, en ert samt ekki með neinn kjaft og það er nú fínt!

Og við spyrjum að leikslokum já!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.11.2007 kl. 10:08

6 Smámynd: Grisemor

Fátt af þessu var rétt varðandi stöðuna og gengið í deildinni. Vissulega spennandi baráttar framundan en Chelsea vantar enn nokkuð á annað sætið og Liverpool er ekki búið að ná MnU 2007/08 Premier League Table OVERALLHOMEAWAY  GPWDLGSGAWDLGSGAWDLGSGAGDP1Arsenal13103029107102063209419332Man Utd149322376101413229616303Man City1492318148001331235114294Chelsea1484221933011351210612285Liverpool137602262401245201021627

Grisemor, 28.11.2007 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband