Hægan Hillary!

Í þessum efnum hef ég einna helst efasendir um hina annars flottu Hillary!
Að gefa samþykki fyrir einhverju sem kannski og hugsanlega hefur verið eitthvað, er nú ekki alveg nógu gott né traustvekjandi!
Að Ísraelsmenn megi skutla sér og sínum vígtólum á annara þjóða grundu eftir líkum, boðar ekki gott fyrir framtíðina!
En ég segi það samt aftur og enn, hún er langskásti kosturinn fyrir Bandaríkin í dag og auk þess væri svo sögulegt ef hún yrði kjörin forseti!
mbl.is Clinton staðfestir sögusagnir um kjarnorkuþróun Sýrlendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Kannski að planið sé: Íran 2008, Sýrland 2010.... og hvað svo?

Bill Clinton var líka mikill "vinur Ísraels". Sennilega kemst enginn í forsetaútnefningu í Bandaríkjunum nema að vera það.

Svala Jónsdóttir, 27.9.2007 kl. 23:19

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Halló, "Þú rödd hrópandans.."!

Að minnsta kosti til að eiga stuðningin hjá gyðingunum í New York næsta vísan, bakkar hún Ísrael upp á allan hátt!

En fjandakornið ef þeir fara nú að dúndra sprengjum á Íran á næsta ári, þá komumst við ekki þangað í heimsókn, þú með mig í bakpokanum haha!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.9.2007 kl. 23:32

3 Smámynd: Kristján Magnús Arason

Það er nú samt svolítð merkilegt að Ísrael hefur alls ekkert óskoraðan stuðning gyðinga í BNA.  Skilst mér að sá stuðningur fari minnkandi, líklega eftir því sem lengra líður frá því að fjölskyldur nefndra gyðinga fluttust til BNA.

 Annars er svolítið óljóst hvað átti sér stað þarna.  Eitt er víst að ef Ísraelsmenn fara að henda sprengjum á Íran, þá þurfum við ekki að velta framtíðinni mikið fyrir okkur, því það verður ekki mikið eftir af henni.

Kristján Magnús Arason, 28.9.2007 kl. 13:37

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Sæll Kristján Magnús nafni minn!

Ekki mikið efftir af framtíðinni? Ertu svo svartsýnn að þú búist við heimsendi, eða hvernig á ég að skilja þessi orð þín um hugsanlega loftárás Ísraela á kjarnorkustöðvar Írana?

En varðandi stuðning hins almenna bandariska gyðings, er hann þó samt ekki það mikill við "guðsríkið útvalda" að það vegur enn þungt í hinni pólitísku bara´ttu? Og svo hitt auðvitað sem oftar en ekki vegur ekki síður þungt í pólitík allra landa, hagsmunir sem snerta efnahagslífið, eru ekki gríðarsterk samtök gyðinga enn í landinu, samsafn auðjöfra og fleiri sem mikið eiga undir því að tengslin séu sem mest og best? Þetta minnir mig nú og hafi til langs tíma í tilfelli Demokratanna allavega vegið nokkuð þungt!

Bestu kveðjur yfir hafið!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.9.2007 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 217998

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband